Um / About - Hálendið - Iceland National Parkhttp://www.halendid.is/verkefnid/Mon, 08 Sep 2014 21:01:43 +0000is-ISSite-Server v6.0.0-9805-9805 (http://www.squarespace.com)Miðhálendið er einn mesti fjársjóður landsins. Þar má finna eldfjöll,
jökla, vatnsmiklar ár og fossa, litrík háhitasvæði, víðfeðm hraun og
svartar sandauðnir sem kallast á við viðkvæmar gróðurvinjar. Saman mynda
þessi náttúrufyrirbæri stórbrotnar landslagsheildir á einum stærstu
víðernum Evrópu. Kraftarnir sem náttúruöflin leysa úr læðingi, þ.m.t.
samspil elds og íss, móta stöðugt þetta tilkomumikla landsvæði, en
öræfakyrrðin sem á það til að umlykja ferðalanga er ógleymanleg hverjum
þeim sem hana hefur upplifað. Að finna megi á einu svæði samansafn þeirra
náttúruverðmæta sem hér er lýst er einstakt á heimsvísu. Að auki fækkar
stöðugt í heiminum stórum óbyggðum svæðum og víðernum þar sem náttúran
ræður ríkjum. Við Íslendingar erum enn í þeirri öfundsverðu stöðu að geta
staðið vörð um þessi verðmæti hér á landi með því að vernda miðhálendið.